Laugardaginn 22. ágúst 2026 fer fram Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, sem er stærsta hlaupahátíð Íslands.
Hægt er að velja milli fjögurra vegalengda og hvort þátttakandi vilji taka þátt í keppni eða ekki.
Almennur miði
Almennur miði veitir þátttakendum rétt til að taka þátt í hlaupinu án þess þó að keppa til verðlauna og úrslit fara ekki í afrekaskrá FRÍ.
Innifalið í almennum miða
Keppnismiði
Keppnismiði veitir þátttakendum möguleika á að vinna til verðlauna og fá úrslitin skráð í afrekaskrá FRÍ. Hægt er að nýta lokatíma til að skrá sig í önnur keppnishlaup erlendis.
Innifalið í keppnismiða
Hlaupið fer fram þann 22. ágúst, 2026. Athugið að dagskráin gæti breyst þegar nær dregur.
Dagskrá á Hlaupadegi
07:00 - Upplýsingamiðstöð opnar
07:00 - Töskugeymsla opnar
08:15 - Keppnisflokkur í maraþoni og hálfmaraþoni - Ræsing
09:00 - Almennur flokkur í maraþoni og hálfmaraþoni - Ræsing
09:45 - Keppnisflokkur í 10 km - Ræsing
10:30 - Almennur flokkur í 10 km og skemmtiganga í 10 km - Ræsing
11:30 - Upphitun í skemmtiskokki hefst
12:00 - Skemmtiskokk - Ræsing
Tímataka stoppar klukkan 15:30. Hlauparar sem koma á marksvæðið eftir þann tíma fá ekki skráðan tíma.
Mikilvægt er að þátttakendur kynni sér vel í hvaða ráshópi þau eru og hefji hlaup á réttum tíma. Þau sem taka af stað með röngum hóp verða dæmd ógild og fá ekki tíma skráðan.
*Með fyrirvara um breytingar - Uppfært 08.04.2026