Register

Laugavegshlaupið 2027

Laugavegshlaupið er 55 km utanvegahlaup en Laugavegurinn tengir saman Landmannalaugar og Þórsmörk á sunnanverðu hálendi Íslands, tvær sannkallaðar náttúruperlur.

Laugavegshlaupið er ekki fyrir gangandi þátttakendur en er ætlað reynslumiklum hlaupurum 18 ára og eldri sem eru í mjög góðri alhliða líkamlegri þjálfun og geta uppfyllt ákveðin skilyrði en þau má finna hér: Er Laugavegshlaupið fyrir þig? - Laugavegshlaupið

Skráning

Skráningin opnar í hádeginu þann 11. nóvember og verður opin í viku, eða til miðnættis þann 18. nóvember. Þátttökuskilyrðin eru 370 ITRA stig. Ef eftirspurn verður meiri en framboð af sætum í hlaupið, verður dregið úr skráðum þátttakendum. Hlauparar geta fengið ITRA stig með því að taka þátt í utanvegahlaupum sem eru viðurkennd af ITRA samtökunum (International Trail Running Association).. Nánar hér Skráning - Laugavegshlaupið

Þeir sem vilja vera í sama ráshóp þurfa að skrá sig saman í skráningarkerfinu (sem sagt, setja tvo eða fleiri miða í körfuna). Þeir sem skrá sig saman verða settir í sama hóp, en röðun í ráshópa fer eftir ITRA stigum. Í ár verður því röðun ráshópa byggð á ITRA stigum. t.d. Ef tveir skrá sig saman þá horfum við á lægri ITRA stigin til að raða í ráshópa.

Fimmtudagur 15. júlí, 2027

15:00 - Afhending gagna opnar í Laugardalshöll

17:30 - Afhending gagna lokar

Föstudagur 16. júlí, 2027

14:00 - Afhending gagna opnar í Laugardalshöll

16:30 - Afhending gagna lokar

Laugardagur 17. júlí, 2027

04:30 - Rútur leggja af stað frá Skautahöllinni í Laugardal - Gulur, Rauður og Grænn ráshópur

05:00 - Rútur leggja af stað frá Skautahöllinni í Laugardal - Blár og Bleikur ráshópur

09:00 - 09:35 Ræsing ráshópa - Nánari upplýsingar Dagskrá á hlaupdegi - Laugavegshlaupið

18:50 - Tímatöku lýkur